
26. maí 2026
30. maí -14. júní 2026
26. maí 2026
Listahátíð í Reykjavík leggur ríka áherslu á aðgengi og er sífellu að leita leiða til að bæta auka aðgengi á hverri hátíð. Í ár er boðið upp á nokkrar nýjar leiðir í túlkun og textun hátíðar.
Nokkrir valdir viðburðir á Listahátíð verða táknmálstúlkaðir. Að auki verður í fyrsta sinn hægt að bóka táknmálstúlk frá Hröðum höndum á viðburði og reynt eftir bestu getu að verða að þeim óskum.
Í samstarfi við Tiro verður í fyrsta sinn boðið upp á rauntímatextun á viðburðum þar sem talað mál er í fyrirrúmi. Tiro er tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í sjálfvirkri talgreiningu fyrir íslenskt talmál yfir í ritaðan texta. Þau hafa verið að þróa lausn fyrir lifandi viðburði sem verður í notkun á nokkrum viðburðum á Listahátíð. Hægt verður að sjá textann í símanum með því að skanna QR kóða sem verða á staðnum á öllum textuðum viðburðum.
Hér fyrir neðan má sjá alla táknmálstúlkaða og textaða viðburði á hátíðinni.
Opnunarhátíð Listahátíðar í Reykjavík, 30. maí kl. 14:00 í Hafnarhús Listasafns Reykjavíkur.
Hátíðin verður táknmálstúlkuð auk þess sem hún verður textuð. Aðgangur er ókeypis.

Brúðusöngleikurinn Rót í Tjarnarbíó, 4. júní kl. 18:00
Sýningin verður táknmálstúlkuð af Hröðum höndum. Það eru frátekin sæti fyrir táknmálsfók þar sem þau sjá túlkinn vel og geta notið sýningarinnar. Hægt er að kaupa miðana hér en miðarnir í þessi sæti verða fráteknir til 30. maí. Eftir það er hægt að kaupa almenna miða, en ekki hægt að ábyrgjast að þá séu laus sæti sem henta vel til að sjá túlk.

Leiðsögn á táknmáli, 14. júní kl. 14:00 í Hafnarhúsinu, Listasafni Reykjavíkur
Leiðsögn á táknmáli um sýninguna Karin Sander 1957-2057 í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Í kjölfarið verður farið á Ilmheim Listahátíðar eftir Fischersund í Gróðurhúsinu á Lækartorgi. Bryn Nóel Francis, táknmálsfræðingur og listfræðingur, verður með leiðsögnina. Aðgangur er ókeypis.

Aðrir viðburðir
Hægt er að óska eftir túlkun frá Hröðum höndum á aðra viðburði á dagskrá hátíðarinnar sem og viðburði í Klúbbnum þar sem talað mál er í fyrirrúmi. Bóka þarf túlkun amk. 3 dögum fyrir auglýstan viðburð, með því að senda póst á hradarhendur@gmail.com. Athugið að á suma viðburði er líka nauðsynlegt að bóka miða.
Allar beiðnir um túlkun verða teknar til athugunar og reynt að verða við þeim eftir fremsta megni.

Kvöldkaffi með Stefáni Ragnari, 3. júní kl. 21:30 í Klúbbi Listahátíðar í Iðnó.
Rætt verður við Stefán Ragnar um glæstan feril hans sem flautuleikari hjá nokkrum af virtustu sinfóníuhljómsveitum í heimi. Aðgangur er ókeypis. Viðburðurinn fer fram á íslensku og er textaður.
Listamannaspjall: Open Grouo & Matra Czyż, 4. júní kl. 12:30 í Klúbbi Listahátíðar í Iðnó.
Listamannaspjall með Marta Czyż og Open Group um sýninguna Ode to Freedom í Nýlistasafninu. Open Group hefur á undanförnum árum vakið alþjóðlega athygli fyrir áhrifarík verk sem unnin eru í ýmsum miðlum og fjalla um innrásarstríð Rússlands í Úkraínu. Aðgangur er ókeypis. Viðburðurinn fer fram á ensku og er textaður.

Nærmynd með Hildi Guðnadóttur og Sinfóníuhljómsveit Íslands, 4. júní kl. 19:30 í Eldborg.
Flutt eru verk eftir Hildi Guðnadóttur og verk sama hafa haft áhrif á hana. Hildur segir gestum frá verkunum. Aðgangur er ókeypis. Viðburðurinn fer fram á íslensku og er textaður.

Hagyrðingakvöld, 5. júní kl. 20:00 í Klúbbi Listahátíðar, Iðnó.
Öllu verður til tjaldað á hagyrðingakvöldi í Klúbbnum þegar landskunnir hagyrðingar stíga á stokk og kasta fram stökum um það sem efst er á baugi, bæði menn og málefni. Þá mun hin einstæða kvæðamannasveit Tríó Zimsen troða upp. Aðgangur er ókeypis. Viðburðurinn fer fram á íslensku og er textaður.

Ilmtónleikar Fischersunds, 5. júní kl. 21:00, Austurbæjarbíó.
Ilmtónleikar Fischersunds eru einstök upplifun þar sem ilmur, tónlist og myndlist renna saman í sannkallað skynjunarferðalag sem kitlar nef, eyru og augu áhorfenda. Viðburðurinn er textaður. Hægt er að kaupa miða hér.

Kvöldkaffi með Hildi Guðnadóttur, 7. júní kl. 20:00 í Klúbbi Listahátíðar, Iðnó.
Samtal við hátíðarlistamanninn Hildi Guðnadóttur. Hildur er eitt fremsta kvikmyndatónskáld samtímans og margverðlaunuð fyrir störf sín, hlaut til dæmis Emmy- og Grammyverðlaun árið 2019 fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Chernobyl og Óskarsverðlaun árið 2020 fyrir tónlistina við kvikmyndina Joker. Á dagskrá Listahátíðar verða þrír viðburðir þar sem tónlist Hildar er í fyrirrúmi. Aðgangur er ókeypis. Viðburðurinn fer fram á íslensku og er textaður.

Listamannaspjall: Himna, 8. júní kl. 12:00 í Klúbbi Listahátíðar, Iðnó
Fróðlegt listamannaspjall með þeim Peder Bjurman og Lindu Boļšakova sem ræða verk sín á sýningunni Himnu í Norræna húsinu. Á sýningunni rannsakar listafólk jarðveg sem vettvang endurnýjunar, rotnunar, minninga og ímyndunarafls. Sýningarstjóri er Thomas Pausz sem einnig stýrir spjallinu en spjallið fer fram á ensku. Aðgangur er ókeypis. Viðburðurinn er textaður.

Ingoma! A Revolution in Rhythm, 11. og 12. júní kl. 20:00, Borgarleikhúsinu.
Sannkölluð gleðisprengja með trommuleik, dansi og söng frá hinni heimsþekktu sveit Ingoma Nshya, fyrstu kvennatrommusveit Rúanda. Í Rúanda þýðir orðið ingoma bæði vald og tromma. Sýningin fer fram á ensku og er textuð. Hægt er að kaupa miða hér.

Nowhere, 12. og 13. júní kl. 20:00, Tjarnarbíó.
Í þessum margslungna og gáskafulla einleik fer leikarinn og aktivistinn Khalid Abdalla (United 93, The Kite Runner, The Crown) með okkur í óvænt ferðalag um eigin sögu í landslagi stórbrotinna heimsviðburða.
Sýningin fer fram á ensku og er textuð. Hægt er að kaupa miða hér.
