Karin Sander 1957-2057
Karin Sander er heimsþekkt þýsk listakona sem hefur ræktað tengsl við Ísland allt frá fyrstu heimsókninni fyrir þrjátíu árum. Listasafn Reykjavíkur setur nú upp yfirgripsmikla sýningu með glænýjum og eldri verkum hennar.
Mörg verka Karinar eru innblásin af náttúru landsins, menningu og samfélagi. Verkin byggja gjarnan á þátttöku gesta og hugmyndum um samspil efnis, tíma og staðar.
Á sýningunni Karin Sander 1957-2057 er fjallað um staðar vitund í landfræðilegum, líkamlegum og huglægum skilningi. Sýningargestum er boðið að láta skanna sig og prenta af sér smástyttu; auðir strigar á víðavangi safna áferð við mismunandi aðstæður; og neonskilti staðsetur áhorfendur í Hafnarhúsi samkvæmt mælingum Google Earth.
Karin Sander (1957) er þekkt fyrir hugmyndafræðilega nálgun sína á efni og rými þar sem hún vinnur með hversdagslega hluti, arkitektúr og stafræna miðla. Verk hennar hafa verið sýnd á virtum alþjóðlegum vettvangi, þar á meðal Arkitektúrtvíæringnum í Feneyjum 2023, Kunstmuseum Winterthur og SFMOMA. Árið 2018 vann Karin samkeppni um útilistaverk í Vogabyggð í Reykjavík.
Aðgengi
Aðgengi í Hafnarhúsinu er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð. Þrjú sérmerkt bílastæði eru við safnið.
Hægt er að panta sjónlýsingu fyrir blint og sjónskert fólk um sýninguna. Panta þarf með fyrirvara.
Öll salerni í húsinu eru kynlaus
