30. maí -14. júní 2026

Leiðsögn á táknmáli um Karin Sander 1957-2057 og Ilmheim Listahátíðar

14. JÚN
14:00
LISTASAFN REYKJAVÍKUR

Sunnudaginn 14. júní kl. 14:00 verður leiðsögn á táknmáli um sýninguna Karin Sander 1957-2057 í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Í kjölfarið verður farið á Ilhiem Listahátíðar eftir Fischersunds í Gróðurhúsinu á Lækartorgi. Bryn Nóel Francis, táknmálsfræðingur og listfræðingur, verður með leiðsögnina. Aðgangur er ókeypis.

Karin Sander 1957-2057 er yfirgripsmikil sýning á verkum þýsku listakonunnar Karin Sander, sem hefur ræktað tengsl við Ísland allt frá fyrstu heimsókn fyrir þrjátíu árum.

Mörg verka listakonunnar eru innblásin af náttúru landsins, menningu og samfélagi. Á sýningunni er fjallað um staðarvitund í landfræðilegum, líkamlegum og huglægum skilningi. Sýningargestum er boðið að láta skanna sig og prenta af sér smástyttu og auðir strigar á víðavangi safna áferð um mismunandi aðstæður.

Í tilefni Listahátíðar í Reykjavík hefur Fischersund hannað ilm hátíðarinnar, innblásinn af ósýnilegu lífi borgarinnar. Fischersund tekur yfir Gróðurhúsið á Lækjartorgi með ævintýralegri ilmandi innsetningu. Þar býðst gestum að anda að sér ósýnlegum heimi borgarinnar.

Karin Sander

Aðgengi

Wheelchair

Hafnarhús: Aðgengi í Hafnarhúsinu er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð. Þrjú sérmerkt bílastæði eru við safnið.

Sign Language

Þessi viðburður er á táknmáli.

Eye

Hafnarhús: Hægt er að panta  sjónlýsingu fyrir blint og sjónskert fólk um sýninguna. Panta þarf með fyrirvara.

Hafnarhús: Öll salerni í húsinu eru kynlaus

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13