Karin Sander 1957-2057 - nánara aðgengi
Aðgengislýsing
Aðgengi í Hafnarhúsinu er almennt gott. Útidyr eru sjálfvirkar rennihurðir og ekki eru þröskuldar við þær. Lyfta sem staðsett er við safnabúð gengur á milli allra hæða. Bekkir án arma eru á nokkrum stöðum í sýningarsölum.
Hægt er að fá hjólastól lánaðan í móttöku safnsins.
Aðgengilegt salerni er vinstra megin við móttöku á 1. hæð.
Tvö sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í Grófinni, á milli Hafnarhússins og Borgarbókasafnsins. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tryggvagötu, fyrir utan Gaukinn.
Hægt er að fá sjónlýsingu fyrir blint og sjónskert fólk á sýninguna. Panta þarf hana með fyrirvara með því að senda póst á listasafn@reykjavik.is eða á hopar.listasafn@reykjavik.is
Börn og örorkulífeyristakar fá frítt inn á safnið. Ekki þarf að greiða inn á safnið fyrir aðstoðarfólk og nóg er að tilkynna starfsfólki mótttöku um það við kaup á aðgangsmiða.
Öll salerni eru kynlaus.
Ekki má fara með bakpoka inn í sal en skápar til að geyma muni eru hægra megin við móttöku á 1. hæð.
Hægt er að fá lánaða barnakerru með því að hafa samband við starfsfólk móttöku.
Skiptiborð er á aðgengilegu salerni, vinstra megin við móttöku.
