Hagyrðingakvöld & Tríó Zimsen
Öllu verður til tjaldað á hagyrðingakvöldi í Klúbbnum þegar landskunnir hagyrðingar stíga á stokk og kasta fram stökum um það sem efst er á baugi, bæði menn og málefni. Þá mun hin einstæða kvæðamannasveit Tríó Zimsen troða upp. Fátítt er að efnt sé til slíks viðburðar í Reykjavík - og er það einsdæmi á Listahátíð. Hér er því einstakt tækifæri fyrir Reykvíkinga og ljóðaunnendur hvaðanæva að, sem vilja upplifa þessa skemmtilegu lifandi hefð landans. Hver veit nema einhverjir í salnum láti ljós sitt skína?
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.
