30. maí -14. júní 2026

16. júlí 2026

Finisage í Kling & Bang

Hinum megin og Gallerí Kichin bjóða öll velkomin á finisage í Kling & Bang næstkomandi laugardag frá 17:00-20:00.
Halla Einarsdóttir flytur gjörning og „Contemporary Nail” býður gestum og gangandi upp á sérstakar lista-neglur svo endilega mætið með tóman striga.

Fljótandi og fastar veitingar í boði

Dagskrá
17:00 - Nagla-snyrtistofa „Contemporary Nail”.
18:00 - Halla Einarsdóttir fer með gjörning.

Gallerí Kichin var stofnað af þeim Skúla Thayer og Silju Rún Högnadóttir þegar þau hófu nám við Listaháskóla Íslands. Galleríið er helst þekkt fyrir sýningarröðina Skúlptúr vikunnar. Á Listahátíð í ár hafa þau haldið sex opnanir á sýningartímabilinu þar sem rjómi íslenskrar listakreðsu hefur sýnt listir sínar.

Hinum Megin er brakandi nýtt sýningarstjóra- og hönnunarteymi stofnað af þeim Hugo Llanes, Janosch Bela Kratz og Katerina Spathi. Á sýningu þeirra birtist landsvæði og hverfur á ný, ekki aðeins sem áþreifanlegur staður, heldur sem fyrirbæri sem mótast af valdi, auðlindanýtingu, brottflutningi og sameiginlegu minni.