
8. september 2026
30. maí -14. júní 2026
8. september 2026
Verkið Brothætt: Ritual I Heilunin eftir Steinunni Knúts Önnudóttur prýðir nú bakhlið Tjarnarbíós. Við verkið er QR kóði sem leiðir mann á hljóðrás verksins.
Verkið Brothætt: Ritual I Heilunin var unnið í Klúbbi Listahátíðar í júní sl. Þar bauð Steinunn fólki að sleppa tökum á því sem er brotið, rofið eða virkar ekki lengur. Brotið leirtau öðlaðist merkingu í nýju samhengi, og varð að stærri heild í einstakri mósaíkmynd.
Við hvetjum öll til að ganga Suðurgötuna og skoða þetta fallega verk.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá vinnunni við verkið og hvernig það þróaðist yfir hátíðartímann í höndum Steinunnar, Völu Höskuldsdóttur samstarfskonu hennar og hátíðargestum.