
19. nóvember 2026
30. maí -14. júní 2026
19. nóvember 2026
Ársfundur fulltrúaráðs Listahátíðar í Reykjavík fór fram í Höfða 22. október og var afar vel sóttur. Aðild að fulltrúaráði eiga allar helstu menningarstofnanir landsins og fagfélög listafólks. Borgarstjórinn í Reykjavík hefur gegnt formennsku í ráðinu síðastliðin tvö ár en menningarráðherra varaformennsku. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Logi Einarsson menningar-, háskóla og nýsköpunarráðherra sátu bæði fundinn.
Borgarstjóri setti fundinn og bauð fundargesti velkomin í Höfða og gaf svo orðið til Katrínar Jakobsdóttur, stjórnarformanns Listahátíðar sem fór með skýrslu stjórnar. Með Katrínu í stjórn eru Sigtryggur Magnason, fulltrúi ráðherra, og Tryggvi M. Baldursson, sem situr í stjórn fyrir hönd fulltrúaráðs.
Lára Sóley Jóhannsdóttir kynnti næst skýrslu listræns stjórnanda sem sagði frá hinni frábæru hátíð síðasta sumars. Í allt tóku um 1200 listamenn þátt og yfir 30.000 gestir mættu á hátíðina sem stóð frá 30. maí til 14. júní. Lára sýndi myndir og myndbönd frá ólíkum viðburðum og þakkaði samstarfsfólki í salnum, listafólkinu öllu og öðrum bakhjörlum fyrir sérstaklega gott samstarf.
Framkvæmdastjóri Listahátíðar, Tinna Grétarsdóttir, fór yfir uppgjör síðasta árs og kynnti rekstraráætlun 2026-27. Fjárhagsstaða hátíðarinnar er góð og uppgjör í takt við áætlanir.
Þá var komið að stjórnarkjöri og hélst stjórn óbreytt utan þess að Katrín og Sigtryggur skipta um hlutverk og verður sá síðarnefndi nú formaður stjórnar. Á sama tíma færðist formennska fulltrúaráðs úr höndum borgarstjóra og til ráðherra.
Að fundi loknum var undirrituðu borgarstjóri, ráðherra og listrænn stjórnandi nýjan þríhliða rekstrarsamning til þriggja ára.
Ljósmyndir af fundinum eru teknar af Sunnu Ben