Kvöldkaffi með Stefáni Ragnari Höskuldssyni
Komdu í kvöldkaffi með Stefáni Ragnari Höskuldssyni.
Rætt verður við Stefán Ragnar um glæstan feril hans sem flautuleikari hjá nokkrum af virtustu sinfóníuhljómsveitum í heimi. Stefán Ragnar lumar á skemmtilegum sögum sem gefa innsýn í það sem leggja þarf á sig til að ná slíkum árangri en í æsku var hann til að mynda keyrður alla leið frá Reyðarfirði til Reykjavíkur í flaututíma.
Viðburðurinn fer fram á íslensku.
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Þessi viðburður verður textaður. Á staðnum verður QR kóði sem gesti geta skannað sem leiðir þá að heimasíðu með lifandi textun.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.