Stefán Ragnar
Stefán Ragnar Höskuldsson, flautuleikari, er í hópi íslensks tónlistarfólks sem náð hefur einstökum árangri í hinum alþjóðlega tónlistarheimi.
Stefán var fyrsti flautuleikari Metropolitan-óperunnar í New York frá 2008 til 2016 og hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Chicago frá 2015 til 2025. Síðastliðið haust tók hann við stöðu fyrsta flautuleikara Fílharmóníusveitarinnar í Berlín. Hann kemur einnig reglulega fram sem einleikari og gestakennari víða um heim.
Það er mikið tilhlökkunarefni að Stefán Ragnar komi nú fram í fyrsta sinn á Listahátíð í Reykjavík. Tónleikarnir fara fram bæði í Reykjavík og á æskuslóðum Stefáns fyrir austan, í Tónlistarmiðstöð Austurlands. Hér gefst einstakt tækifæri til að hlýða á Stefán Ragnar leika með góðvinum sínum, Sigurgeiri Agnarssyni, sellóleikara, og Liam Kaplan, píanóleikara. Á efnisskránni verða verk eftir tónskáld á borð við Prokofiev, Villa-Lobos og Mendelssohn.
Aðgengi
Eskifjarðarkirkja: Aðgengi að Eskifjarðarkirkju er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús. Ekki er sérstakt hjólastólastæði fyrir áhorfendur en auðvelt að koma slíku fyrir. Aðgengilegt salerni er í húsinu. Tvö sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið.
Norðurljós: Aðgengi í Norðurljósum er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Sérmerkt hjólastólastæði eru í Norðurljósum. Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu. 19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft.
Norðurljós: Tónmöskvi er í Norðurljósum.