30. maí -14. júní 2026

Stefán Ragnar - nánara aðgengi

Tónleikar á Eskifirði og í Reykjavík með einum fremsta flautuleikara Íslands

Aðgengislýsing

Wheelchair

Eskifjörður: Tónleikarnir fara fram í Eskifjarðarkirkju. Aðgengi er almennt gott. Af efra bílastæði er bein leið að inngangi. Af neðra bílastæði liggur rampur upp að inngangi. Í rýminu eru ekki sérmerkt hjólastólastæði. Nægt pláss til að koma hjólastólum fyrir en gott er að hafa samband við sóknarnefnd á netfangið saeunnskula@gmail.com fyrir tónleika.

Aðgengilegt salerni er vinstra megin við salinn þegar horft er inn í kirkjuna.

Tvö sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru á efri bílastæðum við kirkjuna, eitt sitt hvoru megin við innganginn.

Ekki þarf að greiða inn á tónleikana fyrir aðstoðarfólk.

Wheelchair

Reykjavík: Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum í Hörpu. Aðgengi í Norðurljósum er almennt gott. Útidyr eru sjálfvirkar rennihurðir og ekki eru þröskuldar við þær. Þrjár lyftur fara beint úr bílastæðakjallara og á allar hæðir hússins. Sérmerkt stæði eru fyrir hjólastóla í salnum, panta þarf sæti í gegnum miðasölu Hörpu.

Sæti í Norðurljósum eru án arma.

Við suma innganga eru dyramottur með snöggum hárum.
Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu.

19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft. Til að geta lagt gjaldfrjálst í stæðin í bílakjallara þarf að senda póst á bilahus@greenparking.is með a.m.k. 3 tíma fyrirvara með nafni, kennitölu handhafa P-merkis, bílnúmeri, tímasetningu og ljósmynd af P-merki.

Hearing loop

Reykjavík: Tónmöskvi er í Norðurljósum. Hægt er að fá afnot af búnaðnum með því að láta vita í miðasölu þegar miðar eru keyptir. Það eru sendar í loftinu sem gefa frá sér innrautt merki. Merkið sendist í móttakara, heyrnartól eða hljóðslaufu sem virkar með heyrnartækjum.

Reykjavík: Kynlaus salerni eru við efri bílakjallara og á gangi á 2. hæð. Aðgengileg salerni eru einnig kynlaus.

Afþreyingarsvæði fyrir börn er á 1. hæð Hörpu og skiptiborð á nokkrum salernum.

Á 1. hæð er veitingarstaðurinn Hnoss Bistro og á 4. hæð er veitingarstaðurinn La Primavera.