30. maí -14. júní 2026

Nærmynd – Hildur Guðnadóttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands

4. JÚN
19:30
ELDBORG

Nærmynd er heillandi kvöldstund með tónskáldinu Hildi Guðnadóttur og Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar sem brugðið er upp myndum af starfi hennar á síðustu árum.

Hildur er eitt fremsta kvikmyndatónskáld samtímans og margverðlaunuð fyrir störf sín, hlaut til dæmis Emmy- og Grammyverðlaun árið 2019 fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Chernobyl og Óskarsverðlaun árið 2020 fyrir tónlistina við kvikmyndina Joker.

Hér leiðir listakonan sjálf dagskrá þar sem hún segir frá verkum sínum, áhrifavöldum og glímunni við að styrkja frásögn kvikmyndarinnar með áhrifamikilli tónlist. Efnisskráin er samsett af tónlist Hildar sjálfrar, t.d. úr kvikmyndunum Joker, Tár og Haunting in Venice. Einnig verður flutt tónlist sem haft hefur mikil áhrif á Hildi í gegnum tíðina, m.a. úr smiðju Arvo Pärt, Ryuichi Sakamoto, Mika Levi, Kaija Saariaho og Alvin Lucier.

Hljómsveitarstjóri: Daníel Bjarnason
Gestgjafi og einleikari á selló: Hildur Guðnadóttir
2.900-10.900 kr.
Kaupa miða

Aðgengi

Wheelchair

Aðgengi í Eldborg er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Átta hjólastólastæði eru í Eldborg. Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu. 19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft.

Hearing loop

Tónmöskvi er í Eldborg.

Sign Language

Þessi viðburður verður textaður. Á staðnum verður QR kóði sem gestir geta skannað og leiðir þá að heimasíðu með lifandi textun.

Kynlaus salerni eru við efri bílakjallara og á gangi á 2.hæð. Aðgengileg salerni eru líka kynlaus og eru þau á öllu hæðum Hörpu.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 14