Kvöldkaffi með Hildi Guðnadóttur
Komdu í kvöldkaffi með Hildi Guðnadóttur.
Samtal við hátíðarlistamanninn Hildi Guðnadóttur. Á dagskrá Listahátíðar verða þrír viðburðir þar sem tónlist Hildar er í fyrirrúmi. Nærmynd eru tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem Hildur segir frá eigin verkum og áhrifavöldum sínum. Verkið Where to From verður flutt ásamt eldra efni í Silfurbergi í Hörpu og á tónleikunum Samhljómur kynslóða í samstarfi við Hallgrímskirkju verða flutt verk eftir Hildi og Jón Nordal.
Spjallið fer fram í Klúbbnum í Iðnó að loknum tónleikunum í Hallgrímskirkju.
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Þessi viðburður verður textaður. Á staðnum verður QR kóði sem gesti geta skannað sem leiðir þá að heimasíðu með lifandi textun.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.
