30. maí -14. júní 2026

Samhljómur kynslóða

7. JÚN
17:00
HALLGRÍMSKIRKJA

Tveimur áhrifamiklum tónskáldum verður teflt saman á tónleikum Kórs Hallgrímskirkju á Listahátíð í Reykjavík, þeim Hildi Guðnadóttur, hátíðarlistamanni Listahátíðar 2026 og Jóni Nordal sem hefði orðið 100 ára vorið 2026. Á tónleikunum verða flutt nokkur af kórverkum Hildar ásamt Toccötu Jóns Nordal fyrir orgel og stórvirki hans, Óttusöngvum á vori (1993) fyrir kór, sópran, kontratenór, orgel, selló og slagverk. Meðal flytjenda eru Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran, Hanna Dóra Sturludóttir mezzósópran og Björn Steinar Sólbergsson, organisti. Stjórnandi er Steinar Logi Helgason.

Kór Hallgrímskirkju
Hildur Guðnadóttir
Jón Nordal
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran
Hanna Dóra Sturludóttir, mezzósópran
Björn Steinar Sólbergsson, orgel
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Frank Aarnink, slagverk
Steinar Logi Helgason, stjórnandi
6.900 kr.
Kaupa miða

Aðgengi

Wheelchair

Aðgengi í Hallgrímskirkju er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um húsið. Aðgengileg salerni eru til hægri í andyri. Hægt er að óska eftir hjólastólastæði. Fjögur sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið.

Hearing loop

Tónmöskvi er í Hallgrímskirkju.

Kynlaust salerni er til hægri í andyri.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 15
LEIÐ 5