Samhljómur kynslóða - nánara aðgengi
Aðgengislýsing
Tónleikarnir fara fram í Hallgrímskirkju. Aðgengi er almennt gott. Engin þrep eða tröppur eru á leiðinni. Í andyri er útidyramotta með snöggum hárum.
Engin sérmerkt stæði eru fyrir hjólastóla í kirkjunni en hægt er að koma hjólastólum fyrir á kirkjuganginum eða aftast. Hægt er að hafa samband við kirkjuvörð á netfanginu kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is eftir að miði hefur verið keyptur en það er ekki nauðsynlegt.
Aðgengilegt salerni er til hægri inn af andyri.
Alls eru fjögur sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða við kirkjuna, tvö á hvoru bílastæði sitt hvoru megin hana.
Á staðnum er tónmöskvi, ILD9 frá Amptertronic. Hann sendir hljóðið út á koparslaufu sem er staðsett í kirkjunni. Heyrnartæki með T-Coil nema hljóðið frá koparslaufunni.
Ekki þarf að greiða fyrir aðstoðarfólk á tónleikana. Það er nóg að láta vita þegar komið er á tónleikana.
Kynlaust salerni er til hægri í andyri.
