30. maí -14. júní 2026

Ingoma! A Revolution in Rhythm

11. - 12. JÚN
20:00
BORGARLEIKHÚSIÐ, STÓRA SVIÐ

Sannkölluð gleðisprengja með trommuleik, dansi og söng frá hinni heimsþekktu sveit Ingoma Nshya, fyrstu kvennatrommusveit Rúanda. Í Rúanda þýðir orðið ingoma bæði vald og tromma.

Árið 2004 var hópur kvenna að leita leiða til að endurheimta styrk, reisn og von í kjölfar þjóðarmorðsins í landinu. Þær stigu byltingarkennt skref og brutu aldagamlar hefðir sem meinuðu konum að svo mikið sem snerta trommu. Úr varð Ingoma Nshya, fyrsta kvennatrommusveit Rúanda. Síðan þá hefur sveitin öðlast heimsfrægð auk þess að stuðla að auknu jafnrétti og sjálfstæði kvenna með gleði og vald­eflingu að leiðarljósi.

Sýningin er saga þessara einstöku kvenna í formi tónlistar og frásagnar. Stofnandi hópsins, rúandska listakonan Kiki Katese, og rúansk­kanadíska sópransöngkonan Ineza Mugisha sem flúði þjóðarmorðið með fjölskyldu sinni leiða áhorfendur í gegnum þessa stórbrotnu tón listar­sýningu þar sem bæði ný og klassísk tónlist Austur­ og Vestur­ Afríku fær að njóta sín. Undir heimsklassa trommu leik heyrum við sögurnar á bak við tónlistina; sögur um sigra og sorgir, flótta undan ofbeldi og sanna hamingju.

Ingoma Nshya, kvennatrommusveit Rúanda Ingoma Nshya: Kamariza Médiatrice, Mukamugema Chantal, Mukanyandwi Claudine, Mukeshimana Alphonsine, Mushimiyimana Marguerite, Uwamariya Clémentine, Uwintije Clémentine, Uwizerwa Marie Noella
Höfundur texta, flytjandi & meðhöfundur: Gakire Katese Odile “Kiki”
Leikstjóri & meðhöfundur: Ross Manson
Tónlist: Ingoma Nshya
Flytjandi: Ineza Mugisha
Skuggaleikhús: Kristine White Katese Aurore
Framleiðendur: Women Cultural Center í Rúanda Volcano í samstarfi við Ndabaga Collective
Meðframleiðendur: Edinburgh International Festival ArtsEmerson í Boston Perelman Performing Arts Center í New York (PAC NYC) University of Georgia Performing Arts Luminato Festival Toronto

Sýningar:
11. júní kl. 20:00
12. júní kl. 20:00

7.900 kr.
Kaupa miða

Aðgengi

Aðgengi að Stóra sviði Borgarleikhússins er almennt gott. Betra aðgengi er inn um útidyrahurð sem snýr að Verzlunarskólanum en hurðaopnari er við þá útidyrahurð. Auðvelt er að komast um húsið. Tvö hjólastólastæði eru í öftustu röð í salnum. Aðgengilegt salerni er í húsinu. Þrjú sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið.

 

Tónmöskvi er í salnum.

 

Skynnæmir: Hægt er að fá lánaða peltora (hljóðeinangrandi heyrnatól).

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 4
LEIÐ 13