30. maí -14. júní 2026

Heimstónlistarhátíð fjölskyldunnar í Hörpu

13. JÚN
11:00
HARPA

Á Heimstónlistarhátíð fjölskyldunnar í Hörpu verður boðið upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá í opnum rýmum hússins. Gestir geta hlustað á tónlist frá ólíkum heimshornum, kynnst hljóðfærum, tekið þátt í söng og dansi og skapað handverk innblásið af mismunandi menningarheimum.

Hátíðin er hugsuð sem notaleg og skapandi samverustund fyrir alla aldurshópa þar sem fjölskyldur geta komið og farið að vild. Fjöldi listafólks, móðurmálsskóla og menningarsamtaka taka þátt.

Sérstakir gestir eru hin heimsþekkta sveit Ingoma Nshya, fyrsta kvennatrommusveit Rúanda, en sveitin mun heims­ frumsýna nýtt verk í Borgarleikhúsinu á lokahelgi Listahátíðar.

Þátttakendur: Þykjó Móðurmálsskólar Menningarsamtök Ingoma Nshya Listafólk búsett á Íslandi
Framleiðandi: Fjölskyldudagskrá Hörpu
0

Aðgengi

Viðburðurinn fer fram í opnum rýmum á 1. og 2. hæð í Hörpu. Aðgengi er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu. 19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 14