Heimstónlistarhátíð fjölskyldunnar í Hörpu - nánara aðgengi
Aðgengislýsing
Viðburðurinn fer fram í opnum rýmum á 1. og 2. hæð í Hörpu. Aðgengi er almennt gott. Útidyr eru sjálfvirkar rennihurðir og ekki eru þröskuldar við þær. Þrjár lyftur fara beint úr bílastæðakjallara og á allar hæðir hússins.
Við suma innganga eru dyramottur með snöggum hárum.
Við svið verða stólar án arma sem hægt er setjast á. Borð og stólar eru í opnum rýmum. Allstaðar er aðgengi fyrir hjólastólastði.
Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu en besta aðgengið er að salernum í kjallara, á 1. og 2. hæð.
19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft. Til að geta lagt gjaldfrjálst í stæðin í bílakjallara þarf að senda póst á bilahus@greenparking.is með a.m.k. 3 tíma fyrirvara með nafni, kennitölu handhafa P-merkis, bílnúmeri, tímasetningu og ljósmynd af P-merki.
Aðgangur er ókeypis.
Kynlaus salerni eru við efri bílakjallara og á gangi á 2. hæð. Aðgengileg salerni eru einnig kynlaus.
Á 1. hæð er veitingarstaðurinn Hnoss Bistro og á 4. hæð er veitingarstaðurinn La Primavera.
Afþreyingarsvæði fyrir börn er á 1. hæð Hörpu og skiptiborð á nokkrum salernum.
