30. maí -14. júní 2026

Ingoma! A Revolution in Rhythm - nánara aðgengi

Gleðisprengja með Ingoma Nshya, fyrstu kvennatrommusveit Rúanda, á Stóra sviði Borgarleikhúsinu

Aðgengislýsing

Wheelchair

Sýningin fer fram á Stóra sviði Borgarleikhússins. Aðgengi í Borgarleikhúsinu er almennt gott. Hurðaopnari er hægra megin við útidyrahurð á móti Verzlunarskólanum en engin hurðaopnari er við hurðina sem snýr að Kringlunni. Um 1 cm. brún er við báðar hurðar. Hægt er að fara um húsið sjálf án þess að fara um þrep eða tröppur. Gólf í andyri er að hluta til með teppi með snöggum hárum og að hluta til flísalagt.

Tvö sérmerkt stæði eru fyrir hjólastóla í salnum, sæti 32 og 33 á 8. bekk. Það þarf ekki að greiða fyrir hjólastólastæðið en greitt er fyrir aðstoðarfólk. Hægt er að bóka hjólastólastæðin á netinu eða með því að hafa samband við miðasölu í síma 568-8000.

Aðgengilegt salerni er við Nýja sviðið.

Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er beint fyrir framan aðalinngang á móti Verzlunarskólanum. Tvö bílastæði eru við húsið á bílastæði sem snýr að Kringlunni.

Hearing loop

Tónmöskvi er í salnum. Hafið samband við starfsfólk í forsal til þess að fá sendi sem gestir setja um hálsinn. Tónmöskvinn virkar með heyratækjum sem hægt er að setja á t-stillingu.

Eye

Boðið er upp á snerti-skoðunarferð fyrir blint og sjónskert fólk. Hægt er að koma fyrir sýningu, fá leiðsögn frá aðstandenda verksins og snerta leikmynd, leikmuni og brúður. Þetta tekur um 20 mínútur. Bráðlega koma upplýsingar um hvernig má bóka þá þjónustu.

Headphones

Hægt er að fá lánaða peltora (hljóðeinangrandi heyrnatól) hjá starfsfólki í forsal.

Kynlaus salerni eru hægra megin í húsinu, við Nýja sviðið.

Veitingarsala er á staðnum.