Listamannaspjall: Himna
Fróðlegt listamannaspjall með þeim Nomeda og Gediminas Urbonas og Lindu Boļšakova sem ræða verk sín á sýningunni Himnu í Norræna húsinu. Á sýningunni rannsakar listafólk jarðveg sem vettvang endurnýjunar, rotnunar, minninga og ímyndunarafls. Sýningarstjóri er Thomas Pausz sem einnig stýrir spjallinu.
Nomeda og Gediminas Urbonas (LT) eru stofnendur hins þverfaglega Urbonas Studio þar sem nýstárlegri þekkingu og listrænni nálgun er beitt til að endurmóta almannarými og okkar sameiginlega hugarheim.
Linda Boļšakova (LV) er listakona sem kannar tengsli manneskjunnar við umhverfið og teflir saman líkamsverund okkar og efnislegar tilveru plantna. Í verkum sínum ræktar hún tilfinninguna fyrir að tilheyra vistkerfi og því samfélagi lífvera sem deila þessari jörðu.
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.
