30. maí -14. júní 2026

Himna: Goðsagnir & skáldskapur úr jörðu

6. JÚN - 30. ÁGÚ
15:00
NORRÆNA HÚSIÐ

Á sýningunni Himnu er rýnt í endurnýjun jarðvegs sem gerir jörðina byggilega, kveikir líf og hlúir að því. Vísinda­legar og pósthúmanískar nálganir hníga í auknum mæli að því að jarðvegurinn sé sjálfstýrt, lifandi kerfi – kvikt samlífi fremur en dauð auðlind.

Hann styður við vöxt sem og mikilvæga hringrás niðurbrots og rotnunar. Hann er frjór vettvangur fyrir goðsagnir, getgátur og skáldskap samhliða vísindalegri þekkingu.

Sýningin leiðir saman hóp samtímalistamanna sem notast við ólíkar vinnuaðferðir en varpa ljósi á jarðveg sem lifandi minni og arkíf ólíkra tegunda.

Peder Bjurman Gediminas Nomeda Urbonas Eglė Budvytytė Johanna Seeleman Sigrún Thorlacius Linda Boļšakova Lucrezia Costa
Sýningarstjóri: Thomas Pausz
Samstarfsaðilar: Norræna húsið, Háskóli Íslands

Opnun 6. júní kl. 15:00

Opnunartímar:
Þri–sun kl. 10:00–17:00

0

Aðgengi

Aðgengi í Norræna húsinu er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengileg salerni eru á efri hæð. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið og einnig má leggja upp við göngustíg af bílastæðinu.

 

Skynnæmir: Í Norræna húsinu er sérstakt næðisrými.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 15