30. maí -14. júní 2026

Himna - nánara aðgengi

Samsýning um ólíka rhliðar jarðvegs í Norræna húsinu

Aðgengislýsing

Wheelchair

Sýningin fer fram í sýningarsal í kjallara Norræna hússins. Aðgengi er almennt gott. Tvær leiðir eru inn í sýningarsalinn. Annars vegar er hægt að fara inn um aðalinngang en rampur liggur frá bílastæði og að útidyrahurð. Hún opnast út með hnappi sem er á vegg framan við útidyrahurð. Um leið og komið er inn er lyfta á hægri hönd sem fer beint niður í sýningarsal. Hins vegar er hægt að fara beint af bílastæði niður 9 tröppur með handriði sem leiða inn í kjallara, hurðin opnast ekki sjálfkrafa. Engir þröskuldar né þrep eru í sýningarrýminu. Á efri hæð eru nokkrir lægri þröskuldar, um 2 cm, inn í stærri sali.

Í sýningarrýminu er hægt að setjast á bekki og stóla.

Hægt er að fá lánaða hjólastóla. Einn er í fatahengi á 1. hæð og einn í fatahengi í kjallara.

Aðgengilegt salerni er á 1. hæð í húsinu, niður ganginn fram hjá Elissa salnum, salerni er innst á vinstri hönd.

Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða fyrir utan en einnig er leyfilegt að leggja upp við göngustíg af bílastæði.

Ýtið hér til að sjá ljósmyndir og lýsingar á aðgengi af heimasíðu Norræna hússins.

Headphones

Sérstakt næðisrými er í Norræna húsinu, á 1. hæð niður ganginn fram hjá Elissa salnum. Starfsfólk í móttöku bókasafns, sem er til vinstri þegar gengið er inn, getur aðstoðað við að finna rýmið.

Aðgangur að sýningunni er ókeypis.

Öll salerni í Norræna húsinu er kynlaus.

Á 1. hæð er kaffihúsið Plantan Bistró sem er opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10 - 17.

Barnabókasafn er í kjallara hússins með afþreyingarsvæði fyrir börn. Tvær leiðir eru inn á safnið, annars vegar niður tröppur af bókasafni á 1. hæð. Aðgengi fyrir fólk sem notar hjólastól eða er með skerta hreyfigetu er í gegnum sýningarsal í kjallara. Látið starfsfólk bókasafnsins vita, sem opnar inn í sal og setur upp ramp. Farið er niður með lyftunni og inn um hurð til hliðar við móttökuna í sýningarsal í kjallara.

Skiptiaðstaða er á aðgengilegu salerni á 1. hæð.