Ilmtónleikar Fischersunds
Fischersund og Listahátíð í Reykjavík kynna fyrstu ilmtónleika á Íslandi með Jónsa, Kjartani Holm og SinFang. Rétt eins og tónlist byggir ilmgerð á samspili ólíkra tóna. Allt frá efstu tónunum til þeirra dýpstu, frá ferskum yfir í höfga, frá hverfulum yfir í langlífa. Þótt ilmgerð hafi verið í forgrunni hjá Fishersundi snýst hugmyndafræði þeirra um að skapa heildstæðan heim þar sem flest skilningarvit gesta eru virkjuð í gegnum lykt, hljóð og sjón. Ilmtónleikar Fischersunds eru einstök upplifun þar sem ilmur, tónlist og myndlist renna saman í sannkallað skynjunarferðalag sem kitlar nef, eyru og augu áhorfenda. Tónlistarmennirnir Jónsi úr SigurRós, Sin Fang og Kjartan Holm flytja tónverk sín sem endurspegla óefnislegan ilm Fischersunds, Ingibjörg Birgisdóttir vinnur myndbandsverk fyrir tónleikana og Lilja Birgisdóttir leiðir okkur í gegnum ævintýrið.
Aðgengi
Aðgengi í Austurbæjarbíó er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um húsið. Tröppur eru inn í sal og upp á aðra hæð en pallalyftur eru á milli allra hæða sem gestir geta notað sjálfir. Við húsið er ekki sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða en beint fyrir utan er sleppisvæði. Þrjú bílastæði eru á götunum í nágrenninu.
Þessi viðburður verður textaður. Á staðnum verður QR kóði sem gesti geta skannað og leiðir þá að heimasíðu með lifandi textun.
Aðgengilegt salerni á 1. hæð er kynlaust salerni.
