30. maí -14. júní 2026

Ilmtónleikar Fischersund - nánara aðgengi

Einstakt skynjunarferðalag Fischersund í Austurbæjarbíó

Aðgengislýsing

Wheelchair with Exclamation Mark

Tónleikarnir fara fram í Austurbæjarbíó. Aðgengi innanhús er almennt gott. Engin þrep eru inn í húsið en tröppur eru inn í sal, upp á áhorfendasvalir inni í salnum og upp á barinn á 2.  hæð. Hjólastólalyfta er um allar tröppur, nema þær sem eru vinstra megin þegar komið er inn í sal. Gestir geta notað lyftur sjálfir en þær eru opnaðar með því að ýta á hnapp á handriði fyrir framan lyftuna. Starfsfólk í sal getur einnig aðstoðað sé þess óskað.

Viðburðurinn er um klukkutími að lengd og gert er ráð fyrir að gestir standi.

Stólar verða aðgengilegir þeim sem vilja sitja, þeir eru ekki með örmum.

Aðgengilegt salerni er á 1. hæð í andyri, í horni til vinstri við barinn.

Við húsið er ekki sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða en beint fyrir utan er sleppisvæði sem rúmar að lágmarki tvo bíla. Þrjú stæði eru í nágrenni við húsið. Eitt við Grettisgötu 87, eitt á horni Grettisgötu og Rauðarárstígs og eitt á horni Njálsgötu og Barónsstígs.

Sign Language

Viðburðurinn verður textaður á heimasíðu sem gestir geta haft opna í farsímum á meðan viðburðinum stendur. Á staðnum verða hengd upp plaggöt með QR kóða sem gestir geta skannað til að sjá lifandi textun.

Aðgengilegt salerni á 1. hæð er kynlaust.

Á staðnum er bar og veitingarsala.