Ævintýri í skynsegin rými
Fjölbreyttur hópur einhverfs og skynsegin listafólks opnar dyrnar að skapandi skynsegin rými. Í boði verða sýningar, gjörningar, upplestrar, umræður, skapandi tilraunir og fleira, í nýstárlegu samhengi og rými hönnuðu frá sjónarhóli skynsegin fólks.
Ævintýri í skynsegin rými er tilraun til að skapa rými þar sem skynsegin listamenn og flytjendur geta unnið og verið þau sjálf - og þar sem öll geta upplifað list á eigin forsendum. Gestir eru beðnir um að kynna sér fyrirkomulag viðburðar fyrirfram með því að skoða þetta skjal.
Viðburðurinn er haldinn í tengslum við Inter Lace Work ráðstefnuna um taugafjölbreytileika og listsköpun sem fram fer í Háskóla Íslands frá 10. til 12. júní og er einnig opin öllum: anfinn.hi.is
13:00-17:00
Rannís
Myndlistarsjóður
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Þessi viðburður býður upp á sérstakt aðgengi fyrir skynsegin fólk. Gestum verður boðið að merkja sig með sérstöku samskiptamerki sem segir til um hvernig þeir vilja hátta samskiptum. Vinasamlega skoðið merkingar hjá öðrum gestum.
Gætt verður að því að halda áreiti í lágmarki. Gestir eru beðnir um að tala lágt, smella í stað þess að klappa, ferðast rólega um rýmið, lágmarka augnsamband, huga að persónulegu rými og sleppa því að nota vörur með sterku ilmefni. Gætt verður að því að ekki verði reykt við útidyrahurð, að þar myndist ekki örtröð og að ekki séu læti.
Stimm og það sem þú þarft að gera til að vera þú sjálf/t/ur er hjartanlega velkomið
Gestir eru beðnir um að kynna sér fyrirkomulag viðburðar fyrirfram með því að skoða þetta skjal.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Þessi viðburður er táknmálstúlkaður.
Öll salerni eru kynlaus.
