30. maí -14. júní 2026

Ævintýri í skynsegin rými - nánara aðgengi

Fjölbreyttir listviðburðir með sérstakri áherslu á aðgengi fyrir skynnæma

Skynlýsing á viðburði

Aðgengislýsing

Wheelchair with Exclamation Mark

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista úti en ekki inni, þegar farið er úr húsi. Innanhúss eru listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Hluti viðburða í Klúbbnum fer fram á pallinum við Iðnó. Rampar eru á báðum hliðum við pallinn en einnig er aðgengi út á pall í gegnum salinn í Iðnó. Lágur þröskuldur er við útidyrahurð.

Lyfta er á milli 1. og 2. hæðar. Lyftan er til vinstri við tröppur upp á aðra hæð, við inngang inn í eldhús. Gestir geta notað lyftuna sjálfir.

Aðgengilegt salerni er á 1. hæð, til vinstri við inngang. Stuðningslár og vaskur er inni á salerni en rýmið sjálft er þó í minna lagi og því er aðgengi fyrir stærri hjólastóla ekki nógu gott.

Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla. Einnig er eitt sérmerktstæði, sem einnig er hleðslustæði, á Kirkjutorgi við Dómkirkjuna og annað við Smiðju, skrifstofubyggingu Alþingis, á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis.

Headphones

Þessi viðburður býður upp á sérstakt aðgengi fyrir skynsegin fólk. Gestum verður boðið að merkja sig með sérstöku samskiptamerki sem segir til um hvernig þeir vilja hátta samskiptum. Vinasamlega skoðið merkingar hjá öðrum gestum.

Gætt verður að því að halda áreiti í lágmarki. Gestir eru beðnir um að tala lágt, smella í stað þess að klappa, ferðast rólega um rýmið, lágmarka augnsamband, huga að persónulegu rými og sleppa því að nota vörur með sterku ilmefni. Gætt verður að því að ekki verði reykt við útidyrahurð, að þar myndist ekki örtröð og að ekki séu læti.

Stimm og það sem þú þarft að gera til að vera þú sjálf/t/ur er hjartanlega velkomið.

Gestir eru beðnir um að kynna sér fyrirkomulag viðburðar fyrirfram með því að skoða þetta skjal.

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.Rýmið er í Forsetaherberginu sem er til hægri þegar komið er inn í Sunnusal.

Fyrir hverja sýningu mun mjúk bjalla hringja og upplýsingar um lengd viðburðarins og mögulega kveikjuþætti verða kynntar.

Mögulegir kveikjuþættir eru meðal annars:

• Blikkandi ljós kl. 14:00–14:30.

• Hreyfismiðja á efri hæð kl. 14:30–15:00, með hægum hreyfingum og lágværum samræðum hjá litlum hópi í miðju rýmisins (öll eru velkomin að taka þátt 😊)

• Hávært talað mál (ekki öskur eða hróp) kl. 15:00–16:00.

Frítt er á alla viðburði í Klúbbnum

Öll salerni eru kynlaus.

Skiptiborð er inni á aðgengilegu salerni

Veitingasala er á staðnum.