Opnunarhátíð
Laugardaginn 30. maí verður Listahátíð í Reykjavík sett í 35. sinn og er dagurinn stútfullur af spennandi og fjölbreyttum viðburðum.
Opnunarhátíðin hefst í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, þar sem boðið verður upp á brot úr nokkrum viðburðum hátíðarinnar, ávörp og léttar veitingar. Samhliða yfirlitssýning á verkum Karin Sander. Í kjölfarið leiða Skólahljómsveitir Reykjavíkur borgarbúa að Hörputorgi þar sem frumflutningur á tónverkinu Loftvægi eftir Samúel Jón Samúelsson fer fram. Í verkinu sameinast skólahljómsveitirnar fjórar, hátt í 600 ungmenni.
Frumsýning á loftfimleika-dansverkinu The Air Between Us hefst kl. 15:30 á Hörputorgi og verður sýnt aftur kl. 17:00. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur eitt stærsta sinfóníska verk sögunnar, áttundu sinfóníu Mahlers, á tónleikum kl. 17:00 og á sama tíma kynnir Fischersund ilmheim hátíðarinnar í gróðurhúsinu á Lækjartorgi. Sýningar James Merry og Bjarkar Guðmundsdóttur opna í Listasafni Íslands kl. 18:00 og svo er tilvalið að enda daginn í opnunarpartýi Klúbbs Listahátíðar í Iðnó þar sem danssýningin Move with Pride fer fram kl. 21:00.
Aðgengi
Hafnarhúsið: Aðgengi í Hafnarhúsinu er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð. Þrjú sérmerkt bílastæði eru við safnið.
Hörputorg: Viðburðurinn fer fram á Hörputorgi, svæðið er malbikað. Viðburðurinn er 30 mínútur að lengd og gert er ráð fyrir að gestir standi. Hægt er að fá sér sæti í áhorfendatröppum við Landsbankahúsið og á bekkjum á svæðinu. Aðgengileg salerni eru í Hörpu. 19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft.
Hafnarhús: Opnunarathöfn í Hafnarhúsinu verður táknmálstúlkuð og textuð í rauntíma
Hafnarhúsið: Öll salerni í húsinu eru kynlaus
Hörputorg: Viðburðurinn fer fram utandyra og inniheldur hljómmikinn lúðrablástur.
Ítarlegri aðgengislýsingar og skynlýsingar á öðrum viðburðum má sjá með því að ýta á hlekkina:
