echolalia - nánara aðgengi
Aðgengislýsing
Aðgengi innandyra í Listasafni Íslands er almennt gott. Hnappur er til að opna útidyrahurðir og engir þröskuldar eru í húsinu. Lyftuaðgengi er á allar hæðir hússins en pallalyfta er við sal 3 á efstu hæð. Gestir geta sjálfir opnað hurðina að pallalyftunni með því að ýta á hnapp á handriði fyrir framan.
Stundum eru bekkir án arma í sýningarsölum en það er þó misjafnt á milli sýninga. Hægt er að fá lánaða klappstóla í móttöku safnsins.
Aðgengilegt salerni er inn af móttöku á 1. hæð.
Hægt er að fá hjólastól lánaðan í móttöku safnsins.
Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu. Frá bílastæði er hægt að fara upp Skálholtsstíg en hann er nokkuð brattur. Betra aðgengi er að safninu um stíg sem liggur á milli Fríkirkjunnar og Listasafnsins. Einnig má keyra stíginn að inngangi safnsins fyrir ofan Fríkirkjuna og hleypa úr bílnum þar.
Hægt er að fá sjónlýsingu fyrir blint og sjónskert fólk á sýninguna. Panta þarf hana með fyrirvara með því að að senda tölvupóst mennt@listasafn.is
Börn og örorkulífeyristakar fá frítt inn á safnið. Ekki þarf að greiða inn á safnið fyrir aðstoðarfólk og nóg er að tilkynna starfsfólki mótttöku um það við kaup á aðgangsmiða.
Aðgengilegt salerni á 1. hæð er kynlaust salerni.
Á 1. hæð er kaffihúsið Kaktus sem opið er alla daga frá 10 – 17.
Ekki má fara með bakpoka inn í sal en skápar til að geyma muni eru í kjallara
Hægt er að fá lánaða barnakerru í móttöku.
Skiptiborð er á aðgengilegu salerni á 1. hæð.
Afþreyingarsvæði fyrir börn er í kjallara safnsins
