30. maí -14. júní 2026

Mahler 8 - nánara aðgengi

Sinfonía no. 8 eftir Mahler flutt í fyrsta sinn á Íslandi.

Aðgengislýsing

Wheelchair

Aðgengi í Eldborg er almennt gott. Útidyr eru sjálfvirkar rennihurðir og ekki eru þröskuldar við þær. Þrjár lyftur fara beint úr bílastæðakjallara og á allar hæðir hússins. Átta hjólastólastæði eru í Eldborg, panta þarf sæti í gegnum miðasölu Hörpu. Stæðin eru gjaldfrjáls en greitt er fyrir aðstoðarmann.

Við sumar útidyr eru dyramottur með snöggum hárum.

Sæti í Eldborg eru með örmum.

Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu.

19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft. Til að geta lagt gjaldfrjálst í stæðin í bílakjallara þarf að senda póst á bilahus@greenparking.is með a.m.k. 3 tíma fyrirvara með nafni, kennitölu handhafa P-merkis, bílnúmeri, tímasetningu og ljósmynd af P-merki.

Hearing loop

Tónmöskvi er í Eldborg. Hægt er að fá afnot af búnaðnum með því að láta vita í miðasölu þegar miðar eru keyptir. Það eru sendar í loftinu sem gefa frá sér innrautt merki. Merkið sendist í móttakara, heyrnartól eða hljóðslaufu sem virkar með heyrnartækjum.

Annað:

Kynlaus salerni eru við efri bílakjallara og á gangi á 2. hæð. Aðgengileg salerni eru líka kynlaus og eru þau á öllu hæðum Hörpu.

Afþreyingarsvæðið Hljóðhimnar fyrir börn er á 1. hæð Hörpu og skiptiborð á nokkrum salernum.

Á 4. hæð er veitingarstaðurinn Hnoss Bistro og á 4. hæð er veitingarstaðurinn La Primavera.