30. maí -14. júní 2026

Listamannaspjall: Open Group & Marta Czyż

4. JÚN
12:30
IÐNÓ

Listamannaspjall með Marta Czyż og Open Group um sýninguna Ode to Freedom í Nýlistasafninu.

Open Group hefur á undanförnum árum vakið alþjóðlega athygli fyrir áhrifarík verk sem unnin eru í ýmsum miðlum og fjalla um innrásarstríð Rússlands í Úkraínu. Hópurinn samanstendur af úkraínsku listamönnunum, Yuriy Biley, Pavlo Kovachog & Anton Varga. Sýningarstjóri er Marta Czyż, listfræðingur og gagnrýnandi, sem býr og starfar í Varsjá. Hún hefur unnið með listamönnum Open Group um árabil og var sýningarstjóri pólska skálans á Feneyjatvíæringnum árið 2024.

Listamannaspjallið fer fram á ensku.

Open Group & Marta Czyż
0

Aðgengi

Wheelchair with Exclamation Mark

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.

Hearing loop

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.

Öll salerni eru kynlaus.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 55
LEIÐ 103