30. maí -14. júní 2026

Óður til frelsisins

5. JÚN - 9. ÁGÚ
18:00
NÝLISTASAFNIÐ, MARSHALLHÚSIÐ

Myndlistarsýning úkraínska listhópsins OPEN GROUP sem hefur á undanförnum árum vakið alþjóðlega athygli fyrir áhrifamikil verk um innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og afleiðingum þess fyrir úkraínsku þjóðina og menningu landsins.

Á meðal verka á sýningunni er stór vídeó­innsetning, Repeat After Me II (2022­2024), sem var framlag Póllands á Feneyjatvíæringnum árið 2024 og hlaut mikið lof bæði gesta og gagnrýnenda.

Listhópurinn OPEN GROUP var stofnaður í Lviv árið 2012 og samanstendur í dag af þeim Yuriy Biley, Pavlo Kovach og Anton Varga. Sýningarstjóri er Marta Czyż. Sýning þar sem tekið er á málefnum líðandi stundar með listrænum en afar beinskeyttum hætti.

OPEN GROUP: Yuriy Biley Pavlo Kovach Anton Varga
Sýningarstjóri: Marta Czyż

Opnun 5. júní kl. 18:00
Opnunartímar: Mið–sun kl. 12:00–18:00

0

Aðgengi

Aðgengi á Nýlistarsafnið er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengileg salerni er á 1. hæð. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er við húsið.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 3
LEIÐ 14