30. maí -14. júní 2026

Óður til frelsisins - nánara aðgengi

Úkraínski listahópurinn OPEN GROUP heldur sýningu í Nýlistarsafninu

Aðgengislýsing

Wheelchair

Sýningin fer fram í Nýlistarsafninu sem er á 2. hæð í Marshallhúsinu. Aðgengi er almennt gott. Hnappur er við útidyrahurð til að opna hana og engir þröskuldar né þrep eru á leið gesta. Lyfta er í andyri og gengur hún á allar hæðir.

Aðgengilegt salerni er á 1. hæð, á salernisgangi fyrir aftan lyftuna, innst til vinstri.

Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er vinstra megin við inngang.

Aðgangur að safninu er ókeypis.

Kynlaust salerni er á salernisgangi á 1. hæð.

Á 1. hæð er veitingarstaðurinn La Primavera.

Ekki má fara með bakpoka inn í sal en skápar til að geyma muni eru á 1. hæð.