Nowhere
Í þessum margslungna og gáskafulla einleik fer leikarinn og aktivistinn Khalid Abdalla (United 93, The Kite Runner, The Crown) með okkur í óvænt ferðalag um eigin sögu í landslagi stórbrotinna heimsviðburða.
Innblásturinn sækir hann í þátttöku sína í egypsku byltingunni 2011 og upplifunina af gagnbyltingunni sem fylgdi í kjölfarið. Khalid tekur á sögu nýlendustefnunnar og niðurbroti hennar, vináttu og missi, mótmælum og uppreisn gegn valdhöfum um víða veröld sem og ofbeldinu á Gaza eftir atburðina 7. október 2023.
Hann fléttar hið persónulega og hið pólitíska saman í eins konar andævisögu og spyr hvernig við höfum komist á þennan stað og ekki síður hvernig finna megi eigin rödd í völundarhúsi sögunnar.
Sýningar:
12. júní kl. 20:00
13. júní kl. 20:00
Aðgengi
Aðgengi að Tjarnarbíó er almennt gott. Lágur þröskulur er við útidyrahurð. Auðvelt er að komast um húsið. Tvö hjólastólastæði eru í fremstu röð í salnum. Tvö aðgengileg salerni eru í húsinu. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er fyrir framan húsið.
