Ilmheimur Listahátíðar: Fischersund
Í tilefni Listahátíðar í Reykjavík hefur Fischersund hannað ilm hátíðarinnar, innblásinn af ósýnilegu lífi borgarinnar; hinum hljóðláta gróðri, sveimandi ilmi og daglegum takti hversdagsleikans sem við allajafna gefum ekki gaum.
Ný slegið gras liggur í hrúgu við girðingarstaur, kerfill kaffærir gangstétt sem böðuð er sól, sláttuvél tætir upp fífla og hundasúrur, ómur af fjarlægu partýi, sólber sem falla eitt af öðru af nöktum greinum.
Í gróðurhúsinu á Lækjartorgi býðst gestum að stíga inn í heim Fischersunds, anda að sér þessum ósýnilega heimi og hlusta á raddir umhverfisins. Hvernig er mjóróma söngur kerfilsins frábrugðinn þýðum tónum birkisins? Hvernig er bjartur ilmur af hundasúru frábrugðinn viðarnótum asparinnar?
Komdu í heimsókn og upplifðu umhverfi okkar með nýju nefi og augum.
Opnunartími / Alltaf opið
Aðgengi
Sýningin fer að mestu fram utandyra í kringum Gróðurhúsið á Lækjartorgi. Lækjartorg er hellulagt. Gróðurhúsið er opið á völdum tímum, rampur liggur inn í húsið er rýmið sjálft er lítið. Engin salerni fyrir gesti eru á svæðinu. Tvö sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við Pósthússtræti