
25. júní 2025
30. maí -14. júní 2026
25. júní 2025
Miðasala á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands á áttundu sinfóníu Mahlers er hafin.
Tónleikarnir verða einn af hápunktum opnunarhelgar Listahátíðar í Reykjavík enda hefur þetta stórvirki tónlistarsögunnar aldrei áður verið flutt hér á landi.
Á sviðinu verða á fjórða hundrað flytjenda; óvenjustór hljómsveit, átta einsöngvarar, kór og barnakór. Verkið er fagnaðaróður til kærleika og mennsku og geislar af bjartsýni og samstöðu.
Hljómsveitarstjóri er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og fara tónleikarnir fram föstudaginn 29. maí kl. 19:30 og laugardaginn 30. maí kl. 17:00 í Eldborgarsal Hörpu.
Miðasala er hér.