30. maí -14. júní 2026

29. maí 2026

Listahátíð hefst 30. maí

Laugardaginn 30. maí verður Listahátíð í Reykjavík sett í 35. sinn og er dagurinn stútfullur af spennandi og fjölbreyttum viðburðum.

Opnunarhátíðin hefst í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, þar sem boðið verður upp á brot úr nokkrum viðburðum hátíðarinnar, ávörp og léttar veitingar. Samhliða er yfirlitssýning á verkum Karin Sander opnuð.

Í kjölfarið leiða Skólahljómsveitir Reykjavíkur borgarbúa að Hörputorgi þar sem frumflutt verður verkið Loftvægi eftir Samúel Jón Samúelsson. Í verkinu sameinast skólahljómsveitirnar fjórar með hátt í 600 ungmenni .

Loftfimleika-dansverkið The Air Between Us verður svo sýnt tvisvar sinnum á Hörputorgi, Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur eitt stærsta sinfóníska verk sögunnar á tónleikum í Eldborg og Fischersund opnar verk sitt Þokuloft í gróðurhúsinu á Lækjartorgi þar sem upplifa má ilmheim hátíðarinnar. Sýningar James Merry og Bjarkar opna í Listasafni Íslands og svo er tilvalið að enda daginn í opnunarpartýi Klúbbs Listahátíðar í Iðnó þar sem danssýningin Move with Pride fer fram.