30. maí -14. júní 2026

22. maí 2026

Starfsnemar Listahátíðar

Teymi Listahátíðar stækkar alltaf er nær dregur hátíð og nú í vor bættust fjórir starfsnemar í hópinn: Cristina Agueda, Dagbjört Emilía Hauksdóttir Söebech, Hallveig Rúnarsdóttir og Ingibjörg Steingrímsdóttir. Nemarnir koma frá m.a. Listaháskóla Íslands, Háskólanum á Bifröst og Háskóla Íslands. Þær sinna fjölbreyttum verkefnum tengdu sínu námi og áhugasviði eins og undirbúningi og skipulagi fyrir Klúbb hátíðarinnar, vinnu að verkefnum tengdum aðgengi og inngildingu, kynningarmál og allt þar á milli.

Það hefur verið stórkostlegt að fá þessar kjarnakonur inn í hópinn enda vinna margar hendur létt(ara) verk.