
1. júní 2026
30. maí -14. júní 2026
1. júní 2026
Laugardaginn 30. maí var Listahátíð í Reykjavík sett í 35. sinn við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Gestir fjölmenntu á opnunarhátíðina þar sem boðið var upp á tónlist, dans, myndlist og fjölbreytta dagskrárliði sem gáfu innsýn í það sem fram undan er á hátíðinni. Dagurinn einkenndist af gleði, eftirvæntingu og lifandi menningarlífi víðs vegar um miðborgina.
Fram undan eru 16 dagar af listviðburðum þar sem boðið verður upp á um 60 viðburði af öllu tagi. Að hátíðinni koma hátt í 1.300 listamenn frá Íslandi og erlendis sem skapa einstakt tækifæri til að upplifa fjölbreytta samtímalist, tónlist, sviðslistir og skapandi verkefni fyrir alla aldurshópa.
Einn af hápunktum dagsins var frumflutningur tónverksins Loftvægi eftir Samúel Jón Samúelsson á Hörputorgi þar sem fjórar skólahljómsveitir Reykjavíkur sameinuðust í kraftmiklum flutningi með hátt í 600 ungmennum. Gestir nutu einnig loftfimleika- og dansverksins The Air Between Us, sýninga í söfnum borgarinnar og fjölbreyttrar dagskrár sem markaði upphaf hátíðarinnar.
Dagurinn endaði svo með opnun Klúbbs Listahátíðar í Iðnó. Fyrir utan húsið hófst þátttökuverkið Brothætt, þar sem gestir eru hvattir til að umbreyta brotnum munum í sameiginlegt listaverk og stendur yfir alla hátíðina. Inni í Klúbbnum var síðan frumsýnt dansverkið Move With Pride eftir Rebeccu „Ondina“ Hidalgo í samstarfi við Íslenska dansflokkinn. Verkið, sem sameinar dans, tónlist og persónulegar frásagnir, var stórbrotið sjónarspil sem hreif áhorfendur með sér. Húsið var troðfullt og stemningin einstök þegar verkið setti tóninn fyrir líflegt opnunarkvöld og geggjaða dagskrá Klúbbsins á hátíðinni. Allir viðburðir Klúbbs Listahátíðar eru gjaldfrjálsir og opnir öllum.