1.-16. júní 2024

28. júní 2021

Barbara Hannigan á Listahátíð 2022

Syngjandi hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan kemur fram á tvennum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð í Reykjavík 2022. Miðasala er hafin.

Hin stórkostlega kanadíska sópransöngkona Barbara Hannigan syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tvennum tónleikum á opnunarhelgi Listhátíðar í Reykjavík, 3. og 4. júní 2022. Hannigan lætur sér ekki duga að syngja með sveitinni heldur stjórnar henni sjálf!

Í mörg ár hefur verið í bígerð að fá þessa einstaklega hæfileikaríku kanadísku listakonu til landsins. Með sameinuðu átaki Listahátíðar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur það nú tekist. 

Barbara Hannigan hefur vakið feykilega aðdáun um heim allan undanfarin ár, fyrir stórfenglegan söng en ekki síður hæfileika sína sem hljómsveitarstjóri. Hún hefur starfað með fremstu sinfóníuhljómsveitum heims og frumflutt yfir 85 ný tónverk, þeirra á meðal verk eftir György Ligeti og Hans Abrahamsen. Þá hefur hún sungið í helstu óperuhúsum heims, meðal annars hið krefjandi titilhlutverk í Lulu eftir Alban Berg.

Hannigan hefur hlotið ótal verðlaun fyrir list sína og má þar nefna Grammy-verðlaun fyrir plötuna Crazy Girl Crazy árið 2018 og hin virtu Léonie Sonning-verðlaun árið 2020. Þegar Rolf Schock-verðlaunin féllu henni í skaut rökstuddi dómnefndin ákvörðun sína með þeim orðum að Hannigan væri „einstakur og framsækinn flytjandi sem nálgast tónlistina sem hún flytur með öflugum og lifandi hætti.“ 

Tónleikarnir fara fram í Eldborg í Hörpu 3. og 4. júní 2021. Efnisskráin verður kynnt síðar.