The Factory
The Factory er árleg listasýning sem haldin er í gömlu síldar verksmiðjunni í Djúpavík. Á sýningunni er ólíkum miðlum samtímalistar fléttað saman við liðna tíma og þannig verður til vettvangur fyrir fjölbreytilega list og óvænt skyn hrif.
Árið 2026 er þema sýningarinnar tengsl og verður m.a. unnið með staðbundna list í beinum tengslum við sjálfa verksmiðjubygginguna. Hvað gerist þegar sýningarrýmið er ekki einungis skel utan um listina heldur tekur raunverulega þátt í sköpunarferlinu?
Þemað leiðir einnig hugann að andstæðum tengsla: firringu og aftengingu. Á sýningunni verður kafað í heim skáldskapar, drauma, arfleifðar, fortíðarþrár og framtíðar.
Opnun: 23. maí kl. 21:00
Opnunartími: Daglega kl. 10:30–18:00
Aðgengi
Sýningin fer fram í Gömlu síldarverksmiðjunni á Djúpavík, aðgengi er takmarkað. Fara þarf um 12 tröppur með handriði til að komast inn í rýmið. Sýningin er á tveimur hæðum og brattar tröppur liggja á milli hæða. Gólfið er hrátt steinsteypugólf. Á staðnum eru ekki aðgengileg salerni en almenn salerni eru á Hótel Djúpavík, sem er í 5 mínútna göngufjarlægð frá sýningarrými. Engin sérmerkt stæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið en hægt er að leggja á grasi nálægt inngangi.