30. maí -14. júní 2026

The Factory - nánara aðgengi

Myndlistarsýning á Djúpavík

Aðgengislýsing

Wheelchair with X over it

Sýningin fer fram í Gömlu síldarverksmiðjunni á Djúpavík, ekið er um malarveg. Upp að sýningarrýminu er gras og malarslóði, undirlag er ójafnt. Fara þarf upp 12 tröppur með handriði til að komast inn í rýmið. Gólfið er hrátt steinsteypugólf. Sýningin fer fram á tveimur hæðum og fara þarf upp 25 brattar tröppur með handriði til að komast á milli hæða. Hluti sýningarinnar fer fram í gömlum vatnstanki. Til að komast inn og út úr tankinum þarf að skríða í gegnum lítið op á tankinum.

Ekki er sérmerkt bílastæði fyrir fyrir hreyfihamlaða en hægt er að leggja bílum nálægt inngangi.

Almenn salerni eru á Hótel Djúpavík, ekki er sérstakt aðgengilegt salerni. Um 5 mínútna ganga er frá sýningarrýminu og yfir á Hótel Djúpavík, gengið er um malarveg í smá halla. Upp að hótelinu liggja um 9 þrep án handriðs. Salerni eru til hægri, í gegnum matsalinn.