Fjölskylduhátíð í Elliðaárdal
Elliðaárdalurinn er uppfullur af lífi og nýjum ævintýrum sem breytast dag frá degi. Borgarbúum og öðrum gestum gefst tækifæri til að kynnast þessum stórbrotna stað betur þegar Listahátíð og Elliðaárstöð halda fjölskylduhátíð í Elliðaárdal laugardaginn 6. júní. Listafólk fyllir svæðið af töfrum og dýpkar tengsl okkur við náttúruna í gegnum listrænar uppákomur og viðburði.
11:00 & 12:30
How can we break this circle? - Project HOFIE ( 40 mín)
Hljómur árstíðanna, Sumar - Silfá ( 35 mín)
11:30 til 13:30
Sirkusfræ – Hringleikur
Kórónasmiðjan – Þykjó
Ilmratleikur - Fischersund
Tónlistarhópurinn Silfá býður forvitnum áheyrendum á öllum aldri að ganga með sér eftir skógarstígum dalsins og meðfram ánni, hlusta á fuglasöng og nið árinnar í samspili við víóluleik, píanó og söng. Úr verða einstakir tónleikar þar sem tónlist og hljómur sumarsins renna saman í eitt.
Í gestastofu Elliðaárstöðvar gefst færi á að taka þátt í dansupplifuninni Hvernig getum við rofið þennan hring? Dansdúettinn Project HOFIE býður áhorfendum að íhuga með sér, hægja á, njóta sköpunar þeirra og um leið að skapa í núinu, teikna og mála myndir.
Á útisvæði biður hönnunarteymi Þýkjó upp á Náttúrukóronasmiðju með hlaðborði af náttúrulegum efnivið til að skreyta höfuð sitt til heiðurs náttúrunni og nýrri árstíð. Börn og foreldrar fá að dvelja í smiðjunni eins lengi og þau óska sér, þau velja sjálf efnið og geta gefið ímyndunaraflinu frjálsan tauminn.
Listafólk Hringleiks gera tilraunir með nýtt og ferskt efni í einstöku umhverfi Elliðaárstöðvar og sá fræjum sem fá að spíra á leikvelli sirkusins. Með sirkuslistinni kanna þau samband okkar við rýmið og hvert annað í hráu umhverfi stöðvarinnar.
Einnig geta gestir látið lyktarskynið leiða sig áfram í ilmratleik frá Fischersundi.
Aðgengi
Aðgengi að Elliðaárstöð og byggingum þar í kring er almennt gott. Auðvelt er að komast að húsunum og inn í þau. Nokkur aðgengileg salerni eru á mismunandi stöðum á svæðinu. Sjö sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru á staðnum.
Sumir viðburðir fara fram inni í Elliðaárstöð eða við húsið. Aðrir viðburðir fara fram á svæðinu í kring og við ánna.
