Fjölskylduhátíð í Elliðaárdal - nánara aðgengi
Aðgengislýsing
Um er að ræða fjóra viðburði sem fara fram við Elliðaárstöð og í nærliggjandi umhverfi. Aðgengi að Elliðaárstöð er almennt gott, aflíðandi brekka liggur að svæðinu og gestir komast að öllum rýmum án þess að fara um tröppur. Göngustígur er malbikaður að mestu en hellulagður að hluta.
Á leiksvæði er nestisaðstaða með sérmerkti plássi fyrir hjólastóla.
Þrjú aðgengileg salerni eru á svæðinu. Eitt salerni er inni í Gestastofu til vinstri þegar gengið er inn, fyrir aftan fatahengi á salernisgangi, eitt salerni á útisvæði og eitt á kaffihúsinu, í innri veitingarsal.
Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er við Rafstöðina. Við Hitt húsið, sem er beint á móti, eru alls sex sérmerkt bílastæði, þrjú sitt hvoru megin við húsið.
Aðgangur er ókeypis.
Kynlaus salerni eru í Gestatofu, á kaffihúsi sem og á útisvæði. Skiptiaðstaða er á aðgengilegum salernum bæði inni og úti.
Á staðnum er kaffihús sem er opið á sumrin.
Mjög gott leiksvæði er fyrir börn og fjölskyldur.
