The Air Between Us
The Air Between Us er loftfimleikaverk flutt utandyra af tveimur dönsurum sem kanna sameiginlegan snertipunkt tveggja ólíkra einstaklinga og hvernig lifa má í jafnvægi við umhverfi okkar og aðra þrátt fyrir ólíkan bakgrunn og lífsreynslu. Þetta einstaka, heillandi verk er drifið áfram af forvitni og leikgleði.
Höfundurinn Chloe Loftus er margverðlaunaður dansari og danshöfundur frá Nýja-Sjálandi. Hún flytur verkið ásamt belgíska dansaranum Florent Devlesaver sem hefur skapað sér sérstöðu í evrópsku samtímadanssenunni. Í loftinu breytist hjólastóll Florents í sameiginlegt svið, snertiflöt sem þau nota til að fljúga, snúast hvort um annað og dansa hátt fyrir ofan áhorfendur, líkt og í þyngdarleysi.
Í verkinu er notast við sérútbúið jafnvægiskerfi hannað af Greg Kolbe, fyrrum meðlimi Cirque de Soleil. Leikhópurinn Chloe Loftus Dance starfar í Aotearoa á NýjaSjálandi og hefur í tvo áratugi framleitt rómaðar sýningar sem fara víða. Hópurinn sérhæfir sig í útisýningum sem byggja á loftfimleikum og samtíma dansi og leggur sérstaka áherslu á samfélagslega þátttöku og aðgengi.
Aðgengi
Viðburðurinn fer fram á Hörputorgi, svæðið er malbikað. Viðburðurinn er 20 mínútur að lengd og gert er ráð fyrir að gestir standi. Hægt er að fá sér sæti í áhorfendatröppum við Landsbankahúsið og á bekkjum á svæðinu. Aðgengileg salerni eru í Hörpu. 19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft.
