30. maí -14. júní 2026

Skapandi hreyfismiðja

1. JÚN
18:00
IÐNÓ

Skapandi hreyfismiðja með hinum margrómuðu höfundum og flytjendum The Air Between Us sem sýnt verður á Hörputorgi 30.- 31. maí.

Í þessari gáskafullu smiðju þar sem listsköpun fatlaðs fólks og inngilding eru í fyrirrúmi fáið þið að vinna með ykkar eigin einstöku hreyfingar og sköpunargleði, um leið og þið öðlist innsýn í sköpunarferli listafólksins.

Engrar reynslu er krafist - það nægir að mæta í þægilegum fötum sem þið getið hreyft ykkur í.

Smiðjan hentar vel fólki sem starfar með fötluðum sem og fötluðu og ófötluðu áhugafólki um hreyfingu.


Skráning á: klubbur@artfest.is (14+)

Sjá heimasíðu Chloe Loftus Dance hér

Chloe Loftus Dance skapar heillandi dans- og leikhússýningar sem bjóða bæði upp á nánd og sprengikraft. Verk þeirra rýna á frumlegan og óvæntan hátt í veröld okkar. Drifkrafturinn í sköpun þeirra er að rækta samfélag og halda á lofti mikilvægi aðgengis með því að bjóða upp á hrífandi útisýningar og samfélagsverkefni.
0

Aðgengi

Wheelchair with Exclamation Mark

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.

Headphones

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.

Öll salerni eru kynlaus.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 55
LEIÐ 103