
29. apríl 2025
30. maí -14. júní 2026
8. mars 2006
Hönnunarverðlaun FÍT 2006 í flokknum bókakápur/bókahönnun hlutu Börkur Arnarson og Gunnar Þór Vilhjálmsson fyrir „material time, work time, life time“ en bókin hefur að geyma myndir af listaverkum frá myndlistarþætti Listahátíðar í Reykjavík á síðasta ári. Í umsögn dómnefndar segir: Frumlegasta innsendingin í flokknum og vakti óskipta athygli dómnefndar. Hönnun sem er hugsuð alla leið.
Sýningarstjórar myndlistarþáttar hátíðarinnar 2005, Jessica Morgan og Björn Roth, önnuðust ritstjórn. Ljósmyndirnar í bókinni eru eftir Friðrik Örn Friðriksson en myndir úr vinnustofum Dieters Roth eru eftir Magnús Reyni Jónsson. Hönnun ritverksins var eins og áður sagði í höndum Barkar Arnarsonar og Gunnars Thor Vilhjálmssonar en Dorothée Kirsch sá um framkvæmdastjórn. Yfirumsjón með verkinu hafði Sigurjón Sighvatsson.
Hönnunarverðlaun FÍT voru afhent í Hafnarhúsinu. Þar kom saman fjöldi hönnuða og veitti því, sem skarað hafði framúr á sviði grafískrar hönnunar á síðasta ári, verðlaun og viðurkenningar.
Þrjátíu og fjórir listamenn unnu verk sín sérstaklega fyrir þessa sýningu, sem bar íslenska heitið tími, rými, tilvera, og þróuðu frekar viðfangsefni og áhrif sem finna má í verkum Dieters Roth. Listaverkin voru víðsvegar um landið, m.a. á Skógum, Akureyri, Ísafirði, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum, Undir Eyjaföllum, í Hveragerði og í ýmsum listasöfnum í Reykjavík ásamt Kópavogi og Hafnarfirði.
Bókin var unnin að frumkvæði Eiðastóls sem einnig sá um grunnfjármögnun þess í samvinnu við Kb banka, Odda og 66°N en auk þess tóku Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Listahátíð í Reykjavík þátt í verkefninu. Með Eiðastóli tók hið virta þýska útgáfurfyrirtæki Revolver þátt í útgáfunni og sá um dreifingu bókarinnar um allan heim en fyrirtækið býr yfir þekkingu og reynslu á sviði samtímalistar.