1.-16. júní 2024

6. apríl 2021

Nýtt fyrirkomulag Eyrarrósarinnar og opnað fyrir umsóknir

Opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina 2021 og ný verðlaun - hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar kynnt til leiks.

Allt frá árinu 2005 hafa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair (áður Flugfélag Íslands) staðið saman að Eyrarrósinni; viðurkenningu sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins.  Fyrirkomulag viðurkenningarinnar hefur verið með svipuðu sniði allt frá upphafi, en við endurnýjun samstarfssamnings í ár var ákveðið að endurskoða skipulagið með það í huga að styrkja Eyrarrósina enn frekar sem raunverulegan bakhjarl lista- og menningarlífs utan höfuðborgarsvæðisins. Samráð var haft við menningarfulltrúa á landsbyggðinni í því ferli.

Helstu breytingar á fyrirkomulagi verðlaunanna eru eftirfarandi:

OPIÐ FYRIR UMSÓKNIROpnað hefur verið fyrir umsóknir um Eyrarrósina 2021 og rennur umsóknarfrestur út 26. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar og hlekk á umsóknareyðublað má finna hér. Hefð er fyrir því að veita verðlaunin í heimabyggð síðasta Eyrarrósarhafa og þannig verður það áfram. Verðlaunaafhending fer þó nú fram að vori í stað febrúar áður. Þar sem heimildamyndahátíðin Skjaldborg hlaut viðurkenninguna síðast fer afhendingin fram á Patreksfirði að þessu sinni. Frú Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin.