1.-16. júní 2024

21. desember 2020

Listagjöfum tekið fagnandi um land allt

Yfir eitt hundrað listamenn í fremstu röð komu fram um land allt síðastliðna helgi á hundruðum stuttra viðburða í og við heimili almennings. Um var að ræða Listagjafir á vegum Listahátíðar. Listafólkið dúkkaði upp allt frá Kópaskeri til Keflavíkur og ýmist söng og spilaði, fór með ljóð, dansaði eða sýndi aðrar listir. Margt af allra fremsta listafólki landsins tók þátt í verkefninu, sem gengur út á það að almenningi gafst kostur á að panta listagjöf fyrir ástvin. Þannig var listafólkið oft að birtast sem óvæntur glaðningur á síðustu helgi aðventunnar. 

Það heyrir til tíðinda að stórstjörnur íslensks listalífs banki uppá heima hjá fólki. Mikil stemmning myndaðist á samfélagsmiðlum yfir helgina, þar sem þiggjendur og gefendur Listagjafa deildu skemmtilegum og oft tilfinningaríkum myndskeiðum og ljósmyndum af heimsóknum listafólksins. Hægt er að skoða mikið af skemmtilegu myndefni í Highglights á Instagram reikningi Listahátíðar.

Þrátt fyrir þær hörmungar sem dundu á Austurlandi í síðustu viku tókst að koma langflestum gjafanna til skila þar.  Vegna veðurs varð hins vegar að fresta Listagjafaheimsóknum á Vestfjörðum. Reynt verður að sæta lagi þegar veður leyfir og afhenda þær í lok janúar.  

Verkefnið var að þessu sinni dyggilega stutt af mennta- og menningarmálaráðuneyti og því voru allar listagjafir ókeypis. Verkefnið er framhald á Listagjöf, sem var viðbragðsverkefni Listahátíðar í Reykjavík við samkomutakmörkunum á tímum heimsfaraldurs, og vakti mikla lukku í Reykjavíkurborg í byrjun nóvember.

Meðfylgjandi myndefni lýsir stemmningunni sem myndaðist við afhendingu gjafanna um helgina.