1.-16. júní 2024

27. júní 2020

Kaffibrennslan opnar í Klúbbi Listahátíðar

Laugardaginn 27. júní nk. opnar Kaffibrennslan nýtt kaffihús í Klúbbi Listahátíðar í IÐNÓ. Þennan sama dag ganga Íslendingar að kjörborðinu og ekki gerir það daginn minna hátíðlegan að kíkja við í IÐNÓ í kaffisopa eftir að hafa nýtt sér kosningaréttinn!

Listamannahópurinn Drag-Súgur hefur undanfarna daga klætt IÐNÓ í drag og mun bjóða upp á glæsilega dagskrá á laugardaginn.

kl. 13-18Opið hús. Glamúr og glimmer, pop-up performans og óvæntar uppákomur.

kl. 15-16Rólegur drag-bókalestur fyrir yngstu gestina með hinni einstöku drottningu Starinu.

kl. 21-23DRAG SHOW! Íslenska drag-senan eins og þú hefur aldrei séð hana áður!