![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistahatid%2FZpVKOh5LeNNTxKlA_La%25CC%2581raCV.jpeg%3Fauto%3Dformat%252Ccompress%26rect%3D0%252C0%252C3648%252C4864%26w%3D3000%26h%3D4000&w=1300&q=75)
15. júlí 2024
1.-16. júní 2024
7. febrúar 2024
„Ég hef aldrei á ævinni séð aðra eins hæfileika,” sagði goðsögnin Quincy Jones um hinn unga Jacob Collier sem kemur fram á Listahátíð í Reykjavík 16. júní í Eldborg.
Þessi fjölhæfi og einlægi tónlistarmaður þykir engum líkur á sviði og nær magnaðri tengingu við áhorfendur. Hann sló fyrst í gegn fyrir um áratug síðan með eigin útsetningum á þekktum lögum þar sem hann raddaði margfalt með sjálfum sér og lék á öll hljóðfæri. Hann er í dag sexfaldur Grammy-verðlaunahafi sem hefur komið fram með fjölbreyttum hópi tónlistarfólks og nýtur ómældrar virðingar og vinsælda í tónlistarheiminum. Hann hefur unnið með jafn ólíku tónlistarfólki og Hans Zimmer, Coldplay, Brandi Carlile, BTS, Stormzy, Pharrell Williams og Aliciu Keys. Tónlistarsköpun hans lýtur sínum eigin lögmálum og þar kallast á heimur djassins, sálartónlistar og R&B, popps og jafnvel klassískrar tónlistar. Á tónleikunum í Eldborg fáum við að sjá hann í elementinu sínu þar sem hann grípur í ólík hljóðfæri og stekkur á milli tónlistarstíla.
Á TikTok og Instagram er Jacob Collier einn sá allra vinsælasti meðal tónlistaráhugafólks.
Forsala fyrir póstlista Listahátíðar hefst fimmtudaginn 15. febrúar kl. 11:00 en almenn miðasala sólarhring síðar. Smellið hér til að skrá ykkur á póstlistann.
„Einn eftirsóttasti tónlistarmaður heims.” - Rolling Stone
„Sláandi, einstakur flutningur.” - The Guardian